Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið er ætlað til notkunar með BL-5CT endurhlaðanlegri rafhlöðu. Hugsanlega verður hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá
Nokia fyrir þetta tæki. Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia.
Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-8, AC-10, AC-11, AC-15 . Númer
hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð og auðkennd er með E, X, AR, U, A, C, K eða B.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er
orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu.